.... far og tröll.......
....... í Hafnarfirði þessa dagana, ekkert ál. Aumingja fólkið sem býr í faskeiði og getur bara haft allar tegundir af eggi ofaná brauð. Auminga fólkið þegar agningarseðillinn kemur í hús. Vona bara að þeir verði ekki hnepptir í ög. En úrslitin eru ráðin og ekki hægt að breyta því.
Það hefur ekki gefist tími til að skrifa neitt hér undanfarið þar sem töluvert hefur verið að gera í prófalestri og verkefnaskilum. Var í prófi í dag og öðru í síðustu viku og svo koma tvö eftir páska. Arnar og Lilja eru farin norður, Inga og Erla Dagmar fara líklega á miðvikudaginn og ég fer væntanlega úr bænum á föstudagskvöldið en hvert er ekki alveg ljóst enn.
Annars er bara flest við það sama held ég og man eiginlega ekki eftir neinu fleiru að sinni.
Bestu kveðjur.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli