laugardagur, febrúar 25, 2006

Viðbrögð

Síðasta færsla virðist hafa valdið einhverjum hugarangri. Ég ætla ekki að útskýra það neitt frekar. Ég endurtek ekki……………

Þvílíkt og annað eins magn af hugmyndum og uppástungum sem bárust í villibráðasamkeppnina sem ég efndi til hér fyrir stuttu. Vandamálið er að svo virðist sem serverinn hjá blog central hafi hrunið við að taka á móti svona gríðarlegu gagnamagni og því miður náðist ekki að bjarga miklu. Sem betur fer náði ég að leggja nokkrar hugmyndir á minnið og ákvað ég að nota eina sem kallast villikoníak og villigrand.

Við Arnar Ingi lentum í hörmungum í gærkvöld. Leigðum okkur DVD og fyrir valinu varð War of the worlds. (ok ég valdi hana) Þvílík og önnur eins þvæla hefur varla verið brend á disk lengi. Svei mér ef það væri ekki skemmtilegra að horfa á nokkra þætti með Ophru en þetta.

Megið þið eiga góða helgi og þar til næst, bless bless.

Engin ummæli: