miðvikudagur, október 10, 2007

Eplakaka!

Já hún Erla Dagmar er bara orðin altalandi, farin að segja góóóór (skór) úúaa (húfa) úbba (úlpa) og margt fleira. Það nýjasta er eplakaka (Erla Dagmar) er hún ekki dulle :-) Hún er orðin hinn mesti gönguhrólfur og dröslast hérna um íbúðina og prílar upp stigana hérna í blokkinni líka. Það tekur að vísu það langan tíma að hún missir af kvöldmatnum þegar hún kemur heim frá dagmömmunni.
Lífið gengur sinn vanagang hér um slóðir og fastir punktar í tilverunni, eins og t.d. Gunni BiggaBæjó (eins og við köllum hann hérna) er að rífast við skipulagsstofnun þar sem allt nöldur var búið í bili út af Kársnesinu. Hrikalega óheppinn að eiga ekki hlut í Orkuveitunni.
Alveg frábært að geta séð kvöldvélunum frá Akureyri bregða fyrir, fyrir ofan Viðey þegar þær koma inn til lendingar. Þessi "súla" hefði nú hentað betur hérna í Kópavogi að mörgu leiti. Þetta er jú súla, að maður tali nú ekki um Yoko sem smellpassar inn í öll þessi frumlegu fyrirtækjanöfn hér um slóðir. En það þýðir ekki að nöldra yfir því þar sem gamli góði Villi náði að landa þessu, enda gríðarlega góður samningamaður þar á ferð.
Ég setti inn slatta af myndum fyrir stuttu, svona fyrir þá sem eru að nöldra yfir því ;-)
Jæja nóg bull í bili, hafið það sem best.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Dúdda mía - eplakaka er orðin svooooooo stór!!! algjör rófa :)

Nafnlaus sagði...

júhú nýjar myndir!! líka frábærar myndir :D kv. Nöldurseggur nr. 1 ;)

Nafnlaus sagði...

Sæll gamli vinur!
Greinlega margt búið að gerast í þínum heimi frá því við hittumst síðast. Og við báðir orðnir feður og miklir fræðimenn svo eitthvað sé nefnt. Hér er mitt blogg, sem er reyndar næstum komið í eyði frá því við fluttum aftur heim, en hér er hægt að fræðast um okkar tímabil í Norge: http://alvaroskars.blogspot.com/