miðvikudagur, október 24, 2007

Hekla Dögg

Óska Ingu Rut, Einari, og Hönnu Björgu innilega til hamingju með nýjasta meðlim fjölskyldunnar, Heklu Dögg, sem fæddist í fyrrinótt. Stúlkan er bráðmyndarleg líkt og eldri systir hennar. Foreldrarnir eru ekkert svo útlitsgallaðir heldur :-)
Sniglabandið fékk því miður ekki að njóta nærveru þeirra á útgáfutónleikum sínum í gærkvöldi vegna þessarar skyndákvörðunar ungu dömunnar. Við Inga vorum búin að bóka okkur með þeim, en Agnar og Birna hlupu í skarðið og við skemmtum okkur öll konunglega á tónleikum þeirra rugludalla. Þeir fóru hamförum á sviðinu og settu upp nokkur skemmtileg atriði sem mikið var hlegið að. Takk fyrir okkur.
Aftur á móti gekk frekar hægt að komast heim af tónleikunum þar sem einhverjum snillingi hafði dottið í hug að opna partasölu fyrir BMW á miðri Kringlumýrarbrautinni og þurftum við að fara töluverðar krókaleiðir til að komast heim. Hafðist allt að lokum og mildi að engin skyldi hafa farið virkilega illa út úr þessum verknaði.
Segjum þetta gott í bili.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Jæja fræ - hvað er að frétta? Er hægt að panta smásögu og bull?