föstudagur, desember 28, 2007

Pakk

.....arnir opnaðir og jólin að baki. Var alveg ljómandi vel heppnað allt saman og allir sáttir við sitt. Höfðum það gott á Kjörseyri og lítið spennandi að koma sér af stað suður. Gerðum það þó þar sem Inga og Lilja þurftu að vinna og ég verð víst að líta aðeins í námsbækurnar.
Núna er eitthvað af fjölskyldunni með kvefdrullu og svaka stemming á heimilinu. Vonandi að við verðum orðin sæmilega hress á gamlárskvöld. Verðum hér á höfuðborgarsvæðinu um áramótin, borðum heima og ef veður og heilsa leyfir kíkjum við vonandi til Kalla og Steinu.
Setti inn slatta af myndum frá jólahátíðinni.
Læt þetta nægja að sinni og skrifa líklega ekki meira á þessu ári.
Þakka samfylgdina á árinu sem er að líða og sjáumst hress á því næsta.
Ssssssssssssssssjjjjjúúúúú.....ppgggggggghhhh!

Engin ummæli: