mánudagur, september 18, 2006

Léttir & reitir

Eða var það réttir og leitir! Hvað sem því líður þá voru réttir víða um land þessa helgina og þá safnast saman ótrúlegur mannfjöldi til taka þátt í og aðstoða frændfólk, vini og kunningja við að heim búfénaði. Þessi mynd náðist fyrir einhverja tilviljun af okkur bræðrunum heim í Fagradal eftir hafa rekið rollur fram og til baka alla helgina. Leitir gengu ljómandi vel þrátt fyrir þokuslæðing sem hékk yfir hluta laugardagsins. Fjárdráttur gekk nokkuð vel og mest allt ókunnugt komst á sínar heimaslóðir held ég bara. Kunnugt hefur það ágætt heim í haga. Fjölmennt var vanda í Fagradal og held ég 36 manns hafi snætt eftirleitarlærin á laugardeginum. sjálfsögðu var síðan sungið ótæpilega og drukkið af hjartans lyst fram eftir nóttu.
Fjölskyldan mín var á sama tíma á Kjörseyri þar sem álíka mikið var um vera. Þar var smalað á föstudeginum og gekk bara ljómandi. Kannski stutta geti kíkt á rollurnar á næsta ári og horft á systkyni sín hlaupa um og reka rollur. þessu sinni svaf hún þetta mest allt af sér og meira að segja fjörið á föstudagskvöldinu.
Ætli þetta dugi ekki að sinni og reikna má með nokkrum myndum í vikunni.
Bestu kveðjur.

5 ummæli:

Inga Rut sagði...

Flott mynd af ykkur bræðrum :)

Nafnlaus sagði...

Já mjög flott mynd:) kv. Kolla fræ, já gettu hvor!

Nafnlaus sagði...

nei það var ekki ég:-) kv. Kolla fræ, gettu hvor!

Nafnlaus sagði...

MJÖG flott mynd - rétt að vekja athygli á að hægt er að stækka myndina með því að smella á hana - þá sjást þessir fjallmyndarlegu menn betur auk þess sem þá má sjá vinstra megin fermingarmynd af Ingimar (mo ha ha ha ).

INGIMAR sagði...

Ok það var allt í lagi að nefna þetta með stækkunina, en hitt var nú algjör óþarfi!!