Duglegur......
.. er kannski ekki alveg rétta orðið yfir frammistöðu ritarans hér á þessari síðu, meira svona óskrifinn! Það er svo sem ekki ýkja mikið að frétta, en rennum í gegnum það helsta.
Segjum þetta gott að sinni og farið endilega varlega inní sumarið.
Blessjú.
- Skólinn búinn hjá mér og Lilju, skólaslit hjá Arnari á laugardaginn.
- Ég er byrjaður að vinna, teikna og fleira skemmtilegt.
- Sauðburður er búinn í Fagradal, langt kominn á Kjörseyri.
- Þær mæðgur ætla norður um helgina í sauðburð og skólaslit.
- Ég fer í óvissuferð með vinnunni á morgun.
- Pabbi er kominn heim af sjúkrahúsinu og er bara hress.
- Erla Dagmar er í góðum gír á leikskólanum og fór í sveitaferð í dag með þeim.
- Halldór Ásgeir frændi hennar er að byrja þar um mánaðarmótin.
- Ísland komst í úrslit í Eurovision.
- Chelsea vann ekki meistaradeildina heldur hitt liðið.
- Það má ekki keyra um á nagladekkjum lengur.
- Það má aftur á móti veiða Hrefnur.
- Það eru ekki komnar nýjar myndir inn á vefinn hjá okkur.
- Linda og Ottó giftu sig um daginn. Til hamingju með það.
- Við fórum í fermingu vestur á Ísafjörð um Hvítasunnuna, hjá Arnheiði og var mjög gaman.
Segjum þetta gott að sinni og farið endilega varlega inní sumarið.
Blessjú.
1 ummæli:
ótrúlega er ég hittin á nýju bloggin þín ;) ef maður kíkir á svona mánaðarfresti þá passar það vel ;) Kannski ég hendi nokkrum línum á bloggið mitt svo ég geti haldið áfram að skjóta á þig fyrir ofvirknia á síðunni ;)
Skrifa ummæli